31.8.2015

Starfsáætlun 145. löggjafarþings 2015–2016

Í starfsáætlun 145. löggjafarþings 2015-2016 er meðal annars birt áætlun um fjölda þingfundadaga, daga sem eingöngu eru ætlaðir til nefndafunda og kjördæmadaga.

Vefútgáfa af starfsáætlun.

1. Þingsetning er þriðjudaginn 8. september 2015.

2. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi þingsetningardags, þriðjudagsins 8. september.

3. 1. umræða um fjárlagafrumvarp 2016 fer fram fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september. Stefnt er að 2. umræðu fimmtudaginn 26. nóvember. Stefnt er að 3. umræðu fimmtudaginn 3. desember. 

4. Skýrslur Íslandsdeilda um alþjóðastarf Alþingis verða ræddar 28. janúar 2016.

5. Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál verður rædd 17. mars 2016.

6. Ný þingmál, sem eiga að koma á dagskrá fyrir jólahlé og fyrir sumarhlé, þurfa að berast skrifstofu Alþingis annars vegar fyrir lok nóvembermánaðar og hins vegar fyrir lok marsmánaðar.

7. Nefndastörfum lýkur 20. maí 2016.

8. Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) verða miðvikudaginn 25. maí 2016.

9. Kjördæmadagar eru 28. september –  1. október 2015 og 8.–11. febrúar 2016.